NÝ NÁMSKEIÐ HEFJAST 22. MARS Í ÁRBÆ OG MIÐBÆ!

Komdu að dansa HIPHOP, DANCEHALL og WAACKING!
NÝTT í MIÐBÆNUM:
12-15 ára og 16-19 ára og 20+ í Dansverkstæði FÍLD!
Sjá stundaskrá á báðum stöðum hér fyrir neðan... :)

ÓKEYPIS PRUFUTÍMI FÖSTUD. 18. MARS KL. 18-19 Í WAACKING
Í DANSVERKSTÆÐINU (SKÚLAGÖTU 28) FYRIR ALLA!


6 vikna námskeið : 6.900 kr.
Komdu 2x í viku : 10.900 kr.


Skráðu þig hér!

Leggings og bolur á plakati koma í næstu sendingu Boogie Down Reykjavík! :)
Ekki gleyma að skoða úrvalið!

FACEBOOK LEIKUR!
Addaðu facebook.com/dansnamskeid.brynjupeturs og vertu með!

13


UNGFRÚ REYKJAVÍK 2011

Ég sé um choreografíu í allri keppninni sem er haldin á Broadway föstud. 25. febrúar. 22
yndislegar stelpur eru að taka þátt, ég er búin að fara með þeim í pósur og runway basics
ásamt því að æfa þær í dansi. Þetta er búið að vera frábær tími og það er mikill spenningur
fyrir föstudagskvöldinu :)

Upphafsatriðið og tískusýningin eru atriði þar sem ég fékk mest að leika mér, fylgstu með
á Skjá Einum í opinni dagskrá föstudagskvöldið kl. 22!


Sjá myndir hér!


Sjá Ungfrú Reykjavík á netinu hér!

1

UNDIRBÚNINGUR FYRIR FORD KEPPNINA 2011

Ég kíkti á Ford stelpurnar þegar þær voru að undirbúa keppnina og fór með þeim í smá
Waacking. Þátturinn verður sýndur á Skjá Einum fimmtud. 3. feb kl. 19.45. Sjá trailer hér!

ÉG KOMST INN Í WERKAHOLICS OG TÓK ÞÁTT Í STREET STAR!

Woop! Woop! Ég fór s.s. til Köben um miðjan janúar og tók þátt í auditioni fyrir danshópinn
Werkaholics. Eva Schou er listrænn stjórnandi hópsins og þau sérhæfa sig í Waacking og
Vogueing. Það var skilyrði að búa í Kaupmannahöfn en þau vildu gera undantekningu fyrir
mig :) svo ég er bara í skýjunum. Í framtíðinni mun ég kíkja á þau og æfa með þeim eins oft
og ég get. Eva ætlar að kalla á mig ef það eru stórar sýningar í vændum, þá vonandi get ég
stokkið yfir og sýnt með þeim.

Myndir frá prufunum:
15

Hér er video tekið eftir einn tímann, ég kem inn á 0.50 mín. Þetta er Vogueing :)

Myndir úr einkatímum með Evu:
14

Yfir í hina ferðina, þá tók ég þátt í Waacking battlinu á Street Star í Stokkhólmi! Ég hélt ég myndi
aldrei þora að gera þetta og er fegin að ég sló til. Ég hlakka til að vera með í fleiri böttlum! Það
voru 40 dansarar sem tóku þátt, úr þeim valdir 8 sem héldu áfram. Fjórar af þeim sem voru
valdar eru dansarar sem ég hef fylgst með, Kumari Suraj (sem ég lærði hjá í London sl. vor, en
hún er upprunalega frá NYC), Sofia Sofabulous (P fect), Karou og Antoinette (Serial Steppers)
sem vann battlið. Þetta var mikil reynsla og rosalega gaman!

Ég á Street Star:
18

Myndir komnar inn hér! Einnig nánari upplýsingar um báðar ferðirnar og Werkaholics hér!

STREET STAR Í STOKKHÓLMI! WORKSHOPS, BATTLES...

Ég er að fara á einn stærsta street dans viðburð í Evrópu : Street Star! Ég flýg út á miðviku-
daginn (26. janúar) og kem heim eftir helgi. Miðvikud. og fimmtud. tímarnir falla þess vegna
niður í næstu viku (26. og 27. jan), í staðinn verða þau námskeið viku lengur og enda 3. mars.

Street Star er haldin í sjötta sinn í ár, fullt af frábærum dönsurum mæta sem ég hlakka mikið
til að læra hjá. Þessi eru efst á blaði hjá mér: Leiomy Mizrahi (vogue), Benny Ninja (vogue),
Brooklyn Terry (house), Alyssa (waacking), Meech (hiphop), Legend (popping). Ég get ekki
beðið! Þarna verða líka waacking, vogueing og breaking battles.

Addaðu mér á facebook og fylgstu með! :)

DANSÆFINGAR OG AUDITION Í KÖBEN !

Ég ætla að freshen up fyrir vorönnina og fara í mína fyrstu dansferð til Kaupmannahafnar! Þar
ætla ég aðallega í opna- og einkatíma til Eva Schou sem er einn flottasti Waacking og Vogueing
dansari í Evrópu í dag. Hún er í The Imperial House of Waacking og lærði aðallega hjá Tyrone
Proctor og Aus (eins og ég). Ég hef lengi viljað læra hjá henni, og hlakka mikið til að dýfa mér
í danstíma og æfingar. Hún stendur svo fyrir inntökuprófi í danshópinn sinn "Werkaholics"!

Skráningar í fullum gangi fyrir nýju námskeiðin sem byrja 18. janúar! Ég kem fersk heim
og finn á mér að veturinn verður frábær! Hlakka til að dansa með ykkur! Vertu með :)

ÞRJÚ NÝ VIDEO - SJÁÐU INN Í TÍMA, FREESTYLES OG FLEIRA !

Klikkaðu á myndirnar til að sjá videoin... Ný námskeið að hefjast í REYKJAVÍK og á SELFOSSI!

17 9 16

VORÖNN HEFST 18. JANÚAR 2011 !

Gleðilegt nýtt ár elsku dansarar, ég hlakka til að sjá ykkur í vetur! Byrjenda og framhaldstímar í
boði í Hiphop og Dancehall, einnig vinsæli Waacking tíminn sem er opinn öllum! Skoðaðu
síðuna og kynntu þér starfsemina, um stílana og uppbyggingu námskeiða. Kíktu á videoin okkar,
sérstaklega ef þú kannast ekki við Dancehall og Waacking! Fylltu svo út eyðublað hér á síðunni
ef þú vilt skrá þig og vera með á nýju ári :) Allir velkomnir.

Ýttu á plakatið fyrir nánari upplýsingar og stundaskrá:

12


Fylgstu með síðunni, á næstu dögum koma inn ný dansmyndbönd! :)

SÖLUBÁS 23. DES / JÓLAWORKSHOP 27. OG 29. DES!

Það verður annar sölubás fyrir BOOGIE DOWN REYKJAVÍK á Þorláksmessu kl. 15-23 í
Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12. Kíktu við og náðu þér í flott föt! Glænýr t-shirt með nýju design
verður til sölu nýkominn úr prentun, hlakka til að sýna ykkur hann. Its FRESH! Sjá úrvalið HÉR
(mynd af bol ekki komin inn).

Það verður tilboð á gjafabréfum í dans!
Ef keypt eru föt frá Boogie Down Reykjavík fyrir 10.000 kr. eða meira:

"6.900 kr." Gjafabréf = 5.000 kr.
"10.900 kr." Gjafabréf = 9.000 kr.
"20.900 kr." Gjafabréf = 17.000 kr. Pantaðu gjafabréf HÉR.

Jólaworkshopið verður endurtekið sem var svo fáránlega vinsælt í fyrra, ég og Sandra
kennum 4 danstíma í AFRÓ, HIPHOP, KRUMP og WAACKING. Við verðum í Dansverkstæðinu 27. og
29. des kl. 18.30 - 21 báða dagana, verð á allt workshopið er 4.000 kr.! ALLIR velkomnir.

Skráðu þig hér!

Mánud. 27. des:
18.30-19.40 Sandra AFRÓ
19.50-21.00 Brynja HIPHOP

Miðvikud. 29. des:

18.30-19.40 Brynja WAACKING
19.50-21.00 Sandra KRUMP


Video tekið í jólaworkshopinu í fyrra, í tímunum mínum, Hiphop og Waacking:

TAKK FYRIR DAGINN!

Takk fyrir frábærar viðtökur í dag á sölubásnum! Boogie Down Reykjavík er greinilega whats poppin
í Reykjavík ;) Það er svo gaman að finna þennan áhuga, því þessi fatalína er eitt það skemmtilegasta
sem ég hef nokkurn tíman gert! TAKK fyrir að styðja og fíla
BOOGIE DOWN REYKJAVÍK!

Það verður annar sölubás á Þorláksmessu kl. 15-23 í Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Allar upplýsingar komnar inn fyrir:
JÓLAWORKSHOP 27. og 29. des og Vorönn 2011! Skráning hafin! Smelltu á myndirnar...

5
19

NÝ SENDING, NÝJAR MYNDIR OG SÖLUBÁS 14. DES!

Jólagjöf dansarans : dansfatnaður frá
BOOGIE DOWN REYKJAVÍK! Sölubás 14. des kl. 16-21
í Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12. Einnig verða skartgripir til sölu frá
SE DESIGN. Allt saman
íslensk hönnun á frábæru verði. Komdu og kíktu á okkur á þriðjudaginn! :) Sjáðu nýju fötin hér!
Það verður tilboð á gjafabréfum í dans ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Ath. Við tökum ekki við kortum. Þú getur komið með pening eða millifært á staðnum.

NÝTT VIDEO - ELDHÚSPARTÝ FM957!

Brynja, Aldís og special guest Sandra mættu með Waacking og Dancehall show á
Austur 18. nóv sl. Þarna komu líka fram Haffi Haff og Páll Óskar m.a. Þetta var pínku
lítið svið en rosalega gaman og frábært crowd! :)

CLICK HERE til að sjá videoið á Vísi.is
6

JÓLAGJÖF DANSARANS : GJAFABRÉF Í DANS !

Gjafabréfið sendist hvert sem er á höfuðborgarsvæðið. Pantaðu gjafabréf hér!

8

Gefðu skemmtilega jólagjöf, gjafabréf frá 6.900 kr. - 20.900 kr. sem gefur aðgang að 6 - 12
vikna dansnámskeiðum, einu sinni eða tvisvar í viku. Handhafi gjafabréfsins kemur hingað á
síðuna og velur það námskeið sem hentar, enda eru tvö ólík námskeið í boði. Hönnun á gjafabréfi:

7

DANSSÝNING Í ELDHÚSPARTÝI FM957 !

Við verðum með Waacking og Dancehall sýningu 18. nóvember í Eldhúspartýi FM957 á Austur.
Einnig koma fram Páll Óskar, Haffi Haff og fleiri. Við hlökkum mikið til!

Hafðu samband við FM957 og nældu þér í miða í s. 511 0957. Sjáumst á fimmtudaginn! :)

FRÍR PRUFUTÍMI! KOMDU AÐ DANSA :)

Komdu og prufaðu HIPHOP og DANCEHALL! Mánudaginn 8. nóv, kl. 20-21.30 í Árbæjarþreki!
(Fylkisvegi 6, v. hliðina á Árbæjarlaug)

Tímanum verður skipt í tvennt, við keyrum 40 mín hiphop og 40 mín dancehall... blazin' dans-
stemning! ALLIR VELKOMNIR: DANSARAR, byrjendur, framhald, 12-15 ára, 16-19 ára og 20+.
Það þarf ekki að skrá sig í prufutímann, bara mæta :)

4

Námskeiðin hefjast svo í vikunni (9.-12. nóv)! Skráning í fullum gangi, vertu með!

NÝ NÁMSKEIÐ 8. NÓVEMBER Í ÁRBÆJARÞREKI!

Síðustu námskeið vetrarins eru að hefjast, í þetta skiptið verða þau í 5 vikur svo síðasti tíminn
er 10. desember. Nánar hér! Skoðaðu þig um á síðunni, sjáðu videoin og komdu að dansa!

Tvö ólík námskeið:
- Hiphop og Dancehall
- Waacking

Hópar fyrir byrjendur og framhald / 12-15 ára, 16-19 ára og 20 +.
5 vikna námskeið: 5.900 kr. / komdu í bæði námskeiðin: 9.900 kr. Skráðu þig hér! :)

11


Takk fyrir frábæra helgi á Flúðum þið sem komuð! Hópurinn var æðislegur og stóð sig ekkert
smá vel í danstímunum. Hlakka til að sjá ykkur í framtíðinni :)

DANSSMIÐJA Á FLÚÐUM FYRIR 12-15 ÁRA!

Næstu helgi, 22.-24. október, verður helgarnámskeið á Flúðum sem félagsmiðstöðin Zero og
Samfés standa fyrir. Ég verð þarna alla helgina með Hiphop, Dancehall og Waacking tíma. Við
munum einnig læra um sögu og menningu stílanna til að skilja dansinn enn betur.

Það er rúta / hópferð frá Reykjavík og smiðjugjaldið er 5.000 kr.

Nánari upplýsingar hér! Vonandi sé ég sem flesta :)


8

Ný námskeið í Reykjavík byrja
8. nóvember í Árbæjarþreki (Fylkisvegi 6)!
Byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrir 12 - 15 ára, 16 - 19 ára og 20 + í Hiphop, Dancehall og
Waacking. 5 vikna námskeið, 1x í viku: 5.900 kr. / 2x í viku: 9.900 kr.

TAKK FYRIR FRÁBÆRA TÍMA Í VIKUNNI!

Það var brjáluð stemmning í Árbæjarþreki alla vikuna, gaman að vera byrjuð aftur að kenna!

12-15 ára Hiphop og Dancehall hópur opnar á föstudaginn (24. september) og verður því einni
viku lengur en hin námskeiðin. Fríi prufutíminn gekk vel og enn nóg pláss í námskeiðið, vertu með!
Þú getur skráð þig hér!

Hópurinn verður á föstudögum kl. 18 - 19. 6 vikna námskeið: 6.900 kr.
bættu við Waacking á þriðjud. kl. 21-22: 10.900 kr.


BYRJENDUR 16-19 ÁRA OG 20 +

- HIPHOP og DANCEHALL
Fimmtud. kl. 21-22
(örfá laus pláss)
- WAACKING
Þriðjud. kl. 21-22
(laus pláss)

FRAMHALD 16-19 ÁRA OG 20 +
- HIPHOP og DANCEHALL
Miðvikud. kl. 20-21
(biðlisti)
- WAACKING
Mánud. kl. 20-21 (laus pláss)

12-15 ÁRA HÓPUR

- HIPHOP og DANCEHALL
Föstud. kl. 18-19
(laus pláss)

12-15 ÁRA HÓPUR Á FÖSTUDÖGUM KL. 18-19

Enn nóg pláss í yngri Hiphop og Dancehall tímann sem er nú kominn með tíma, loksins.
Fyrsti tími 24. september. 6 vikur: 6.900 kr. Einnig tímar fyrir 16 - 19 ára og 20 +.

DANSARAR munið að tékka á FRAMHALDStímunum!
Enn nóg pláss í WAACKING fyrir byrjendur og framhald! Sjáið nýja videoið hér fyrir neðan.
Ég get ekki beðið eftir að sjá ykkur öll og dansa með ykkur í næstu viku! :)

Við byrjum á mánudaginn, (13. sept)! Sjáðu allar upplýsingar hér!
Skráðu þig og vertu með :)

NÝTT VIDEO!

Sjáðu inn í Waacking og Hiphop tíma frá því í sumar, 3 waacking rútínur og 2 hiphop
rútínur. Það eru allir síspyrjandi um Waacking, so check this out! :)



Vertu með í vetur! Skráðu þig HÉR! Hlakka til að sjá ykkur eftir helgi í brjáluðu dansstuði! ... !! :)

MYNDIR OG FERÐASAGAN FRÁ NEW YORK

10

Ég er búin að skemmta mér mikið við að setja myndirnar inn, bara að sjá þær gefur mér
innblástur! Þetta fólk gefur mér ómetanlegan kraft ár eftir ár og hérna er mitt tribute til þeirra
og nýjar myndir:

- Myndasíðan, ég og kennararnir mínir
- Nánar um dansnámið mitt
- Myndataka með Ed Marshall í Queens, New York fyrir plakatið

Vonandi tókstu eftir nýja útlitinu á síðunni :) mundu að námskeiðin hefjast 13. september,
Im on fire og get varla beðið eftir því að byrja tímana. Hlakka til að kynna fleirum fyrir
Waacking, en stelpurnar mínar hafa gjörsamlega fallið fyrir stílnum. Kíktu á videoin, skráðu
þig hér á síðunni og VERTU MEÐ!

Allar upplýsingar um næstu námskeið hér!

9

SKRÁNINGAR STREYMA INN FYRIR HAUSTÖNN

Sjáðu allar upplýsingar um næstu námskeið HÉR! Skráðu þig á síðunni.

Það er leikur í gangi á facebook, tvær 10.900 kr. inneignir verða dregnar út 8. september!
En það eru TVÖ námskeið í 6 vikur: Hiphop, Dancehall og Waacking.

Taktu þátt: Farðu á facebook.com/dansnamskeid.brynjupeturs, ýttu á Suggest to
friends sem er neðarlega til vinstri og veldu 50 vini. Ég fæ svo tilkynningu í e-mail um hverjir
eru að taka þátt.

FYLGSTU MEÐ NEW YORK FERÐINNI Á FACEBOOK!

Addaðu mér á facebook ef þú vilt fylgjast með, ég set reglulega inn myndir.
Þetta er danssíðan: facebook.com/dansnamskeid.brynjupeturs

Ég er workin' my butt off hérna í NYC, brjálað prógramm á hverjum degi og það er svo
gaman að hitta alla, hef kynnst svo mörgun frábærum dönsurum í gegnum tíðina. Við
hittumst alltaf reglulega í New York og æfum saman, förum í tíma og á klúbbana þar sem
sumir af bestu dönsurum í heimi mæta... það er ekkert hægt að lýsa þessu. Ég veit bara
að veturinn á Íslandi verður BLAZIN'! Ein vika búin... Im gonna be on fire when I get back!
Hlakka til að sjá ykkur og dansa með ykkur :)


DANSFERÐ TIL NEW YORK - NÝ NÁMSKEIÐ 13. SEPTEMBER!

Takk fyrir frábærar viðtökur á sölubásnum, nýju bolirnir kláruðust! Myndir fyrir neðan!

Next stop, New York City! Ég er að fara í danstíma og á æfingar, og hlakka til að koma endur-
nærð til baka með geðveika danstíma! Ég verð þar fram í september :)

Ný námskeið 13. september í Árbæjarþreki, þá skipti ég aftur í byrjenda- og framhaldstíma.
Það verður hægt að skrá sig í 6 vikna námskeið eða alla önnina, 12 vikur. Skráðu þig hér.

Tvö ólík námskeið í Árbæjarþreki...
BYRJENDUR 16-19 ÁRA OG 20 +
- HIPHOP og DANCEHALL
Fimmtud. kl. 21-22
- WAACKING
Þriðjud. kl. 21-22

FRAMHALD
16-19 ÁRA OG 20 +
- HIPHOP og DANCEHALL
Miðvikud. kl. 20-21
- WAACKING
Mánud. kl. 20-21

12-15 ÁRA HÓPUR

- HIPHOP og DANCEHALL
Laugard. kl. 16-17 (tímasetning gæti breyst)

6 vikna námskeið: 6.900 kr.
komdu í báða tímana: 10.900 kr.
- Önnin: 12 vikur, tvisvar í viku: 20.900 kr.


1


SÖLUBÁS ÞRIÐJUDAGINN 27. JÚLÍ, KL. 16 - 21 í KRAMHÚSINU!

Náðu þér í flott föt úr Boogie Down Reykjavík línunni, skoðaðu úrvalið hér!
Hettupeysur: 7.500 kr. / Baggy buxur: 6.500 kr. / Hot pants: 5.000 kr.
T shirts: 3.000 kr. / Tank tops: TILBOÐSVERÐ aðeins á þriðjudaginn: 2.000 kr. (annars 3.500 kr.)

2
Sölubásinn verður í Kramhúsinu þriðjudaginn 27. júlí kl. 16 - 21!

Einnig verður Sandra Erlingsdóttir með skartgripina sína, en hún hannar undir merkinu SE Design.
Komdu og náðu þér í íslenska hönnun á góðu verði! Sjáðu eventinn á facebook hér.


SÍÐUSTU DANSTÍMARNIR

Sumarnámskeiðin eru að klárast í Árbæjarþreki, takk fyrir frábært sumar allir sem mættu á
námskeiðin og workshopin hér í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Akranesi! Its been crazy! :)

Ég verð í New York allan ágúst að dansa og undirbúa veturinn, en áður en ég fer mun ég setja
upp sölubás fyrir Boogie Down Reykjavík fötin - fylgstu með og nældu þér í flott föt!

DIVA DANS WORKSHOP 9. OG 10. JÚLÍ!


3


Loksins aftur, ég og Rosana verðum með námskeið í Árbæjarþreki næstu helgi!

Komdu í 4 divalicious danstíma þar sem feminine, fierce og flottar dansrútínur verða í
aðalhlutverki - og í 3 ólíkum dansstílum. Tímarnir eru sniðnir fyrir 16-19 ára og 20 plús*,
byrjendur og framhald. Þetta eru 'choreografíutímar' en með kynningu og stuttri yfirferð
í grunnatriðum stílanna. You dont want to miss this!

*Yngri stelpur sem hafa áhuga eru auðvitað velkomnar. Nánari uppl. og skráning hér!


NÝ SÍÐA Á FACEBOOK, hinni var eytt

Addaðu facebook.com/dansnamskeid.brynjupeturs ! Þar eru nýlegustu upplýsingarnar.

Það er leikur í gangi til 1. júlí, ef þú gerir 'suggest to friends' og velur þá sem hafa áhuga á
dansi á vinalistanum þínum gætir þú unnið inneign á námskeið að andvirði 6.900 kr.
Inneignin gildir út árið 2010 og tveir einstaklingar verða dregnir út.

DANSSÝNING 17. JÚNÍ!

Ég og danshópurinn minn (Aldís, Mardís, Malín, María, Signý, Arna Lísa og Margrét Ásta)
förum á svið í kringum kl. 4 á Arnarhóli. Hlökkum til að dansa fyrir ÞIG! ...og show off
a little bit, en það er algjört aukaatriði, hehe :)

SELFOSS OG REYKJAVÍK DANSWORKSHOPS!

Ég sagði ykkur að júní yrði busy busy :) Nú verður Dansworkshop á SELFOSSI í
Lifandi Húsi 22. og 24. júní með mér og Rosönu (hún hefur lært í Egyptalandi, USA, Líbanon,
Litháen og unnið sem professional magadansari í Dubai ofl., kennt í Reykjavík síðan 2005,
m.a. í Magadanshúsinu og Kramhúsinu)
, við verðum með HIPHOP, MAGADANS og
WAACKING tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem ég kenni á Selfossi en Rosana hefur verið
með námskeið þar áður. Komdu og vertu með í frábærum danstímum! Sjá nánari
upplýsingar HÉR!


REYKJAVÍK Dansworkshop verður loksins aftur 25. - 27. júní í Árbæjarþreki! Ég og
Sandra með AFRÓ, HIPHOP, KRUMP og WAACKING tíma! Reykjavíkur workshopin eru
alltaf on fire, mikil keyrsla og frábær stemmning! Skipt verður í tvo aldurshópa:
15 ára og yngri: 12-15 ára / 16 ára og eldri: 16-19 ára og 20+. Sjá nánari upplýsingar
HÉR!


ÞÚ GÆTIR UNNIÐ FRÍA INNEIGN Á NÁMSKEIÐ

Fylgstu með á FLASS fm 104.5 mánudaginn 7. júní, þá verða gefin tvö pláss á sumar-
námskeiðin sem byrja í vikunni. Inneignin er fyrir báða tímana, eða 10.900 kr. virði.

Fyrri inneignin fer á milli 11 og 15 hjá Þresti, seinni er gefin á milli 15 og 19 hjá Sindra.

BOOGIE DOWN REYKJAVÍK PARTÝ Á PRIKINU!

Yes yes y'all! Í tilefni opnunar vefsíðunnar verður partý á Prikinu laugardaginn 5. júní!
DJ Danni Deluxe spilar og kokteillinn Boogie Down Reykjavík verður í boði fyrir þá fyrstu.
Partýið byrjar um 11 og verður alla nóttina, flottustu dansarar bæjarins mæta á svæðið!
Komdu í kokteila, nice tónlist og dansdjamm! 20 ára aldurstakmark.

The club = The best place to practice! :)

NÝTT VIDEO FRÁ DANSSÝNINGU Í REYKJANESBÆ!

Ég og danshópurinn minn (Aldís, Malín, Signý, María) sýndum á vorsýningu BRYN Ballett
Akademíunnar 30. maí. Þetta var semí skyndiákvörðun og við skemmtum okkur
fáránlega vel! Þetta eru Hiphop og Waacking rútínur ásamt sólóum frá okkur öllum.

Skráning í fullum gangi á námskeiðin í Reykjavík sem hefjast 7. júní. Sjá nánar HÉR!

Workshopin á Akranesi og í Reykjanesbæ eru í þessari viku, það er nóg pláss í hópana,
sjáðu stundaskránna hérna og skráðu þig á spennandi dansworkshop með mér og Söndru!

Takk fyrir að lesa þetta allt, hehe... Sjáðu nýja videoið HÉR!

VELKOMIN Á NÝJU SÍÐUNA!

Hér er loksins komin einn staður fyrir allar upplýsingar um námskeiðin, nýjustu fréttir og video!
Kynntu þér starfsemina og komdu að dansa - þetta er það ferskasta í Reykjavík, baby!

Glænýjar myndir frá photoshooti með David Terrazas á Myndasíðunni!

SUMARNÁMSKEIÐIN BYRJA 7. JÚNÍ!

Eins og venjulega verða tvö ólík námskeið:
- Hiphop og Dancehall
- Waacking
6 vikna námskeið: 6.900 kr. / komdu í bæði: 10.900 kr. Nánari upplýsingar og skráning hér.

AKRANES OG KEFLAVÍK DANSWORKSHOPS!

Ég og Sandra (hún hefur lært í Afríku og New York, kennt í Kramhúsinu síðan 2006) mætum með
blazin' dansworkshop á Akranes 1. og 3. júní og Keflavík 4. og 5. júní. Þetta verða 4 danstímar
í 4 dansstílum! Brynja: Hiphop og Waacking, Sandra: Afró og Hiphop Krump. Verð: 4.000 kr.
Allir velkomnir, as long as you wanna get down! :) Nánari upplýsingar og skráning hér.